Krummi

Valravn

Krummi svaf i klettagjá,
kaldri vetrarnóttu á
:verður margt að meini:

Fyrr en dagur fragur rann,
freðið nefið dregur hann,
:undan stórum steini:

Hammm Hammm

Á sér krummi ýfði stél
Einnig brýndi gogginn vel
:flaug úr fjalla gjótum:

Lítur yfir byggð og bú
Á bæjum fyrr en vaknir hjú
:veifar vængjum skjótum:

Hammm Hammm

Sálaður á síðu lá
sauður feitur garði hjá
:fyrrum frár á velli:

Krúnk krúnk nafnar komið hér
Krúnk krúnk því oss boðin er
:Krás á köldum svelli:

Hammm Hammm


Zdroj: http://zpevnik.wz.cz